Friday, July 07, 2006

Heiðmerkurferð

Í gær vorum við úti í Heiðmörk að grilla með bestu vinum mínum sem heita Ylfa og Katja. Við lékum okkur saman mjög mikið og við fórum í pinkulítinn göngutúr aleinar. Geir bróðir þeirra fór í lengri göngutúr aleinn, villtist og þurfti að fá að hringja í pabba sinn úr síma frá einhverjum sem hann hitti.

Þetta var rosalega gaman, við fórum í kubb. Ég var í liði með pabba og við unnum ALLT, bæði konurnar og krakkana.

Tuesday, July 04, 2006

Nýjustu fréttir

Elva stórasystur var sú fyrsta sem Auðunn Páll litli bróðir reif í hárið á. Það var nú ekki svo harkalegt, en samt doldið fast.

Fyrir dálítið löngu síðan, dreymdi hann lilla eitthvað illa. Ég er búin að fara til Svíþjóðar, Danmerkur og Spánar.